4A - Breyta burðarvirki - klæðning
Brautarholt 4-4A
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 818
30. apríl, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. október 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar viðbyggingu á bakhlið, stækka og síkka glugga og koma fyrir svölum á báðum hliðum, koma fyrir lyftu og innrétta 16 íbúðir á 2. - 4. hæð og verslun og sameiginlegt þvottahús á jarðhæð, einnig til að byggja einnar hæðar byggingu að lóðamörkum í austur og suður þar sem innréttuð verður hjólageymsla og geymslur íbúða með verönd á þaki á og við hús nr. 4, mhl. 01 á lóð nr. 4-4A við Brautarholt, samkvæmt uppdr. T.ark arkitekta ehf. dags. 21. febrúar 2017 síðast br. 27. apríl 2021. Lagður fram tölvupóstur Pálmar Kristmundsson dags. 14. desember 2020 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti. Erindi var grenndarkynnt frá 18. nóvember 2020 til og með 8. janúar 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: PK Arkitekta ehf., Pálmar Kristmundsson, dags. 27. nóvember 2020 og 7. janúar 2021 og Sigurður G Guðmundsson f.h. PKdM Arkitekta ehf. dags. 7. janúar 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. janúar 2021 og er nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir greinargerð hönnuðar um algilda hönnun dags. 21. febrúar 2017, samþykki meðlóðarhafa dags. 12., 13. og 18. maí 2020, bréf hönnuðar dags. 29. september 2020 og tillaga að nýju lóðarblaði mótt. 29. september 2020. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. ágúst 2020 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 17. ágúst ágúst 2020. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2020.
Stækkun: 208,3 ferm., 604,7 rúmm. Eftir stækkun, A-rými: 1.182,8 ferm., 3.987,7 rúmm. B-rými: 18,8 ferm., 53,5 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.