Niðurrif
Borgartún 34-36
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 400
22. júní, 2012
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 15. júní 2012 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar Jónssonar ehf. dags. 7. júní 2012 um að breyta einstefnugötu sunnan við lóðina nr. 34-36 við Borgartún í tvístefnugötu. Fyrirspurninni var frestað og er nú lögð fram að nýju. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 12. júní 2012.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað með þeim skilyrðum sem koma fram í umsögn skipulagsstjóra dags. 12. júní 2012. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.