(fsp) sameina 0302 og 0402
Kambasel 69
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 335
27. janúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 21. janúar 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. janúar 2011 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að sameina hluta sameignar rýmis í þakhæð og koma fyrir svölum á austurgafl hússins nr. 69 við Kambasel og íbúð 0301. Í þakrýminu verði tómstunda- og geymsluherbergi ásamt baðherbergi. Jafnframt er spurt hvort setja megi 4 þakglugga á norðurhlið þaks og 3 á suðurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 69 við Kambasel. Sbr. erindi BN022590 var samþykkt 10. apríl 2001.
Neikvæð fyrirspurn BN042305 dags. 16. nóvember 2010
Gjald kr. 8.000
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi.
Athygli er vakin á því að samþykki allra eiganda í húsinu þarf að liggja fyrir þegar sótt verður um byggingarleyfi.

109 Reykjavík
Landnúmer: 113227 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024160