beiðni um flutning
Útilistaverk
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 555
25. september, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. september 2015 var lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar R15060181 dags. 2. júlí 2015 ásamt erindi Hallsteins Sigurðssonar myndhöggvara, dags. 31. maí 2015 varðandi flutning verka sinna frá Álfsnesi í Seljahverfi. Erindið er sent umhverfis- og skipulagssviði til umsagnar. Einnig lögð fram umsögn hverfisráðs Breiðholts, dags. 16. september 2015. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. september 2015.
Svar

Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. september 2015.