breyting á skilmálum deiliskipulags
Þrastargata 1-11
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 670
23. febrúar, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Fálkagötureita vegna lóðarinnar nr. 7b við Þrastargötu. Í breytingunni felst að heimilt er að koma fyrir kvisti á norðurhlið hússins, samkvæmt tillögu ARKHD ódags.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Þrastargötu 1, 3, 3b, 4, 5, 7, 8, 9, 10, 11, Smyrilsvegi 29, 31, Fálkagötu 8, 10a.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 8.1. í gjaldskrá nr. 1193/2016 um gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg. Grenndarkynning fer ekki fram fyrr en greitt hefur verið fyrir grenndarkynningu.