breyting á aðalskipulagi
Stekkjarbakki
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 557
9. október, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds mótt. 15. september 2015 um framkvæmdaleyfi vegna gerðs göngu- og hjólastígs meðfram Stekkjarbakka frá stígahverfi við Grænastekk að undirgöngum austan Hamrastekks ásamt gerð gangstétta sem tengja stíginn við gangstéttakerfið í hverfinu, samkvæmt tillögu Verkís, dags. september 2015. Einnig er lögð fram yfirlitsmynd Verkís, dags. september 2015. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. október 2015.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. október 2015.
Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis.

Landnúmer: 111000 → skrá.is
Hnitnúmer: 10073119