Þak, kvistur og svalir
Smáragata 12
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 411
14. september, 2012
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. ágúst 2012 þar sem sótt er um leyfi til að gera breytingar innanhúss, endurnýja þak og byggja þrjá kvisti, byggja nýjar svalir til vesturs, fjarlægja skorstein, byggja úr steinsteypu með timburþaki geymsluskúr á lóð, gera nýjan sérinngang á austurhlið og útgang úr kjallara, sbr. fyrirspurn BN043116, á íbúðarhúsi á lóð nr. 12 við Smáragötu.
Meðfylgjandi er samkomulag eigenda dags. 12. desember 2011, þinglýstur eignaskiptasamningur frá apríl 1992 og afsal frá júní 1992 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 3. febrúar 2012. Einnig meðfylgjandi samþykki eigenda á smækkuðum (A-3) teikningum.
Stækkun húss: 8,96 rúmm.
Geymsluskúr: 25 ferm., 67,3 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. apríl 2012 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 18. apríl 2012 fylgja erindinu.
Gjald kr. 8.000 + 5.384 + 762
Svar

Ítrekuð er bókun afgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 27. april 2012 þar sem samþykkt var að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Smáragötu 10 og 14 og Sóleyjargötu 35 og 37 þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir í samræmi við umsögn skipulagsstjóra dags. 18. apríl 2012.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102742 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018448