Þak, kvistur og svalir
Smáragata 12
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 420
23. nóvember, 2012
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 16. nóvember 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. nóvember 2012 þar sem sótt er um leyfi til að gera breytingar innanhúss, endurnýja þak og byggja þrjá kvisti, byggja nýjar svalir til vesturs, fjarlægja skorstein, byggja úr steinsteypu með timburþaki geymsluskúr á lóð, gera nýjan sérinngang á austurhlið og útgang úr kjallara, sbr. fyrirspurn BN043116, á íbúðarhúsi á lóð nr. 12 við Smáragötu. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi Guju Daggar Hauksdóttur dags. 16. nóvember 2012 þar sem áðurgefið samþykki er dregið til baka.
Meðfylgjandi er samkomulag eigenda dags. 12. desember 2011, þinglýstur eignaskiptasamningur frá apríl 1992 og afsal frá júní 1992 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 3. febrúar 2012. Einnig meðfylgjandi samþykki eigenda á smækkuðum (A-3) teikningum.
Stækkun húss: 8,96 rúmm.
Geymsluskúr: 25 ferm., 67,3 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. apríl 2012 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 18. apríl 2012 fylgja erindinu og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. september 2012. Einnig fylgir bréf skipulagsstjóra dags. 17.9. 2012.Gjald kr. 8.000 + 5.384 + 762.
Svar

Ekki er hægt að taka málið til afgreiðslu þar sem samþykki meðlóðarhafa liggur ekki fyrir.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102742 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018448