Færa hús, nýr byggingarhluti, hækkun o.fl.
Njálsgata 18
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 555
25. september, 2015
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. september 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. september 2015 þar sem sótt er um leyfi til að færa til vesturs um tvo metra, byggja stigahús í bilið að Njálsgötu 20, hækka um eina hæð, byggja kvisti að götu, gera viðbyggingu og svalir á bakhlið og innrétta tvær íbúðir í húsi á lóð nr. 18 við Njálsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. september 2015.
Erindi var grenndarkynnt frá 24. apríl til og með 22. maí 2015. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Pétur Óli Gíslason dags. 5. maí 2015, Bryndís Emilsdóttir f.h. Heimsborga ehf. dags. 6. maí 2015 og Elísabet Árnadóttir dags. 19. maí 2015. Einnig er lagður fram tölvupóstur Péturs Óla Gíslasonar dags. 1. júní 2015 þar sem athugasemdir eru dregnar til baka og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. júní 2015. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 18. nóvember 2014. Stærð verður: 216,3 ferm., 620,9 rúmm.
Stækkun A-rými: 97,6 ferm., 250,8 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. september 2015 samþykkt.