Færa hús, nýr byggingarhluti, hækkun o.fl.
Njálsgata 18
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 522
9. janúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. desember 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. desember 2014 þar sem spurt er hvort færa megi einbýlishúsið um tvo metra til vesturs og byggja nýjan byggingarhluta sem því nemur, byggja hæð ofaná og nýtt og hærra ris með tveim kvistum, endurbyggja og minnka bílskúr, byggja tengibyggingu milli hans og húss og fjölga íbúðum í tvær í íbúðarhúsi á lóð nr. 18 við Njálsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. janúar 2015.
Meðfylgjandi er umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 18. nóvember 2014
Svar

Jákvætt með þeim skilyrðum og leiðbeiningum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. janúar 2015.