framkvæmdaleyfi
Stórhöfði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 551
21. ágúst, 2015
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 10. júlí 2015 var lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir nýjum vegum og enduruppbyggingu vega og stíga á Stórhöfða og Viðarhöfða. Framkvæmdir verða við gatnamót Stórhöfða og Viðarhöfða ásamt gönguleið norðan Stórhöfða og heimreið að Stórhöfða 45. Stórhöfði er breikkaður við gatnamót og m.a. komið fyrir miðeyjum og gönguleið norðan Stórhöfða framlengt að Stórhöfða 45. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2015.
Svar

Framkvæmdaleyfi samþykkt með vísan í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2015.