(fsp) breyting á deiliskipulagi
Hraunbær 123
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 711
11. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. ágúst 2018 var lögð fram fyrirspurn Kristins Ólafssonar f.h. Bandalags íslenskra skáta dags. 28. febrúar 2018 ásamt bréfi ódags. um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 123 við Hraunbæ sem felst í stækkun lóðar og byggingarreits fyrir fyrirhugaða viðbyggingu á lóð, samkvæmt uppdr. Glámu-Kím dags. 6. febrúar 2018. Fyrirspurninni var frestað, fyrirspyrjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa, og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 6. janúar 2019.
Svar

Bréf skrifstofu sviðsstjóra dags. 6. janúar 2019 samþykkt.

110 Reykjavík
Landnúmer: 189576 → skrá.is
Hnitnúmer: 10075167