(fsp) breyting á deiliskipulagi
Háskóli Íslands, Vísindagarðar
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 745
27. september, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. september 2019 var lögð fram fyrirspurn ASK Arkitekta ehf. dags. 10. september 2019 um breytingu á deiliskipulagi fyrir Háskóla Íslands, Vísindagarða, sem felst í að bætt er við byggingarreit útisvæða suðaustan við svæðið og stækkun á lóð G um 18 fm. á horni Sæmundargötu og Eggertsgötu, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 26. ágúst 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2019.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2019.