(fsp) breyting á deiliskipulagi
Háskóli Íslands, Vísindagarðar
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 612
2. desember, 2016
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. nóvember 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. nóvember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja fjögurra hæða verslunar- og skrifstofuhús sem hýsa mun frumkvöðlasetur sem tengir fyrirtæki og vísindasamfélag í Vísindagörðum á lóð nr. 6 við Sturlugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. desember 2016.
Erindi fylgir skýrsla um byggingareðlisfræði og orkuramma, greinargerð með burðarvirkishönnun, greinargerðir um hönnunarforsendur lýsingar og lagnakerfa og greinargerðir um hljóðvist og brunahönnun allt frá verkfræðistofunni Eflu dags. í október 2016 ásamt greinargerð hönnuðar um aðgengi dags. í október 2016. Stærð, A+B rými: 8.683,2 ferm., 30.236 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. desember 2016.