(fsp) breyting á deiliskipulagi
Háskóli Íslands, Vísindagarðar
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 650
21. september, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. september 2017 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, mótt. 5. september 2017, um framkvæmdaleyfi á svæði Háskóla Íslands, Vísindagarðar. Leggja á Eggertsgötu í nýrri legu ásamt því að unnið verði að Ingunnargötu, Bjarkargötu og Torfhildargötu, samkvæmt uppdr. VSÓ ráðgjafar, dags. 19. maí 2017. Einnig er lögð fram yfirlitsmynd VSÓ Ráðgjafar, dags. 10. september 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2017.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2017 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.