(fsp) breyting á deiliskipulagi
Háskóli Íslands, Vísindagarðar
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 596
4. ágúst, 2016
Annað
Fyrirspurn
að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Ask arkitekta ehf., dags. 23. febrúar 2016 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vísindagarða. Breytingin felur í sér breytingu á byggingarmagni og nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdr. Ask arkitekta ehf., dags. 6. maí 2016. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar, dags. 12. maí 2016. Jafnframt eru lögð fram minnisblöð verkfræðistofunnar Eflu um umferðarhávaða, dags. 28. apríl 2016, um rafbílahleðslu, dags. 5. maí 2016 og um yfirferð og rýni á umferð vegna breytinga á deiliskipulagi, dags. 13. maí 2016. Tillagan var auglýst frá 14. júní til og með 26. júlí 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Veitur ásamt minnisblaði, dags. 22. júlí 2016, Jón Jóhannes Jónsson, dags. 26. júlí 2016 og Þóra Ellen Þórhallsdóttir, dags. 27. júlí 2016.
Svar

Samþykkt að framlengja athugasemdarfresti til 11. ágúst 2016.