(fsp) breyting á deiliskipulagi
Háskóli Íslands, Vísindagarðar
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 347
29. apríl, 2011
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Ask Arkitekta dags. 11. desember 2009 f.h. Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. vegna breytinga á deiliskipulagi Háskóla Íslands vegna Vísindagarða. Í breytingunni felst m.a. að lóðinni er skipt upp í sjö lóðir fyrir Vísindagarða, Stúdentagarða og spennistöð Orkuveitu Reykjavíkur samkvæmt uppdrætti Ask Arkitekta dags. 23. mars 2010 ásamt greinargerð og skilmálum dags. 29. mars 2010. Einnig voru lagðir fram minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs dags. 9. júní 2010 af kynningarfundi vegna málsins sem haldinn var þann 3. júní sl. og bréf frá stúdentaráði Háskóla Íslands dags. 14. apríl 2011 þar sem lýst er yfir mikilli ánægju með deiliskipulagið. Tillagan var auglýst frá 16. mars til og með 2. maí 2011.
Lagður fram tölvupóstur Jóns Sch. Thorsteinssonar dags. 20. apríl 2011 þar sem óskað er eftir að frestur til athugasemda verði framlengdur.
Svar

Samþykkt að framlengja frest til að gera athugasemdir til 10. maí nk.