breyting á deiliskipulagi
Reitur 1.172.0 Brynjureitur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 554
18. september, 2015
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.172.0, Brynjureits, samkvæmt uppdr. Ark Studio ehf. og Urban arkitekta ehf. 14. apríl 2015. Deiliskipulagsbreytingin felst í að samræma þann hluta deiliskipulags Brynjureits, stgr. 1.172.0, sem samþykkt var 2003 og 2006 þeim deiliskipulagsbreytingum sem tóku gildi árið 2013, en breytingarnar náðu aðeins til lóðanna Laugavegs 23/ Klapparstígs 31, Laugavegs 27a/ Hverfisgötu 40 - 42 og Laugavegs 27b /Hverfisgötu 44. Breytingar eru uppfærðar og skipulagsskilmálar alls reitsins eru endurskoðaðir og samræmdir. Auk þess er nú gert ráð fyrir breytingum á lóðum að Laugavegi 27 og 29 vegna laga um menningarminjar sem tóku gildi 1. janúar 2013. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2015 um athugasemdir sem bárust vegna hagsmunaaðilakynningar. Lagt fram nýtt bréf Pálma Harðarsonar f.h. Þingvangs ehf. dags. 3. júlí 2015 ásamt lagfærðum uppdráttum 001 og 002, dags. 14. apríl 2015, síðast breytt 3. júlí 2015 . Tillagan var auglýst frá 27. júlí til og með 8. september 2015. Eftirtaldir aðilar sendi athugasemdir: Tómas Hrafn Sveinsson hrl. f.h. Húsfélagsins að Klapparstíg 29, dags. 3. september 2015. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 10. september 2015.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs