framkvæmdaleyfi
Tryggvagata og Naustin
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 773
15. maí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. apríl 2020 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 20. apríl 2020 um framkvæmdaleyfi vegna endurgerðar Tryggvagötu (milli Grófar og Pósthússtrætis) og Nausta (milli Geirsgötu og Tryggvagötu). Einnig er lagt fram teikningasett ódags. og útboðs- og verklýsing dags. í apríl 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2020.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.12. maí 2020. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.