framkvæmdaleyfi
Tryggvagata og Naustin
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 683
1. júní, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. maí 2018 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 4. maí 2018 vegna endurnýjunar á yfirborði Tryggvagötu milli Lækjargötu og Pósthússtrætis og endurnýjunar á yfirborði Bæjartorgs og Steinbryggju (áður Pósthússtræti), samkvæmt uppdr. Landmótunar dags. 2. maí 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2018.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.31. maí 2018. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.