Breyting á skilmálum deiliskipulags
Reitur 1.171.3, Laugavegs- og Skólavörðustígsreitur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 466
1. nóvember, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.171.3, Laugavegs - og Skólavörðustígsreits. Í breytingunni felst að gera megi minniháttar breytingar á húsum samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagssviðs dags. 23. ágúst 2013. Tillagan var auglýst frá 13. september til og með 25. október 2013. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar