Breyting á skilmálum deiliskipulags
Reitur 1.171.3, Laugavegs- og Skólavörðustígsreitur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 450
5. júlí, 2013
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. júní 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. júní 2013 þar sem sótt er um leyfi til stækkunar svala á suð-vesturhlið hússins á lóðinni nr. 5 við Skólavörðustíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2013.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 9.6. 2013, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 13.6. 2013 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 20. júní 2013. Gjald kr. 9.000
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2013.