framkvæmdaleyfi
Kringlumýrarbraut frá Miklubraut að Bústaðavegi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 633
26. maí, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. maí 2017 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, mótt. 16. maí 2017, um framkvæmdaleyfi vegna gerð göngu- og hjólastígs meðfram Kringlumýrarbraut frá Suðurhlíðum að sveitarfélagsmörkum Kópavogs. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. maí 2017.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. maí 2017.
Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016. dags. 26. maí 2107.