(fsp) breyting/leiðrétting á helstu tölum
Bauganes 1A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 627
31. mars, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. mars 2017 var lögð fram umsókn Hildar Bjarnadóttur, mótt. 8. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Einarsness vegna lóðar nr. 1A við Bauganes. Í breytingunni felst að auka byggingarmagn á lóðinni, þar sem gert er ráð fyrir að byggja ofan á bílskúr og tengja hann við húsið, og byggja við eldhús sem snýr til austurs, samkvæmt uppdr. Hildar Bjarnadóttur, dags. 2. mars 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bauganesi 1, 3, 3a, 8 og 8a.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.6 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106804 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001353