nýtt deiliskipulag
Hvassaleitisskóli
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 651
29. september, 2017
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar, mótt. 28. september 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Háaleitisskóla, Hvassaleiti að Stóragerði 11A. Í breytingunni felst að núverandi bílastæði (alls 32 stæði) með aðkomu um mjótt sund frá Stóragerði verði fært til innan lóðar, í suðvesturhorn hennar, með aðkomu frá Brekkugerði, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf., dags. 21. september 2017.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.