breyting á deiliskipulagi
Rauðagerði
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 546
10. júlí, 2015
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Rauðagerðis. Í breytingunni felst að fækka gestabílastæðum úr tveimur í eitt og færa bílastæðið á annan stað í botnlanga götunnar, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. maí 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. júní til og með 3. júlí 2015.
Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Draupnir lögfr. f.h. Sigþórs Sigurjónssonar dags. 16. júní 2015 ásamt viðbótargögnum, Guðrún Guðjónsdóttir og Benedikt Þórisson, dags. 30. júní 2015, Helgi K. Pálsson, dags. 3. júlí 2015, undirskrift íbúa að Rauðagerði 41 - 59 sem fengu sent kynningarbréf, dags. 29. júní 2015, Guðmundur G. Þórarinsson, dags. 2. júlí 2015
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.