breyting á deiliskipulagi
Rauðagerði
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 734
28. júní, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 22. júní 2018 varðandi breytingu á mörkum deiliskipulags vegna nýrra lóðarmarka Tónlistarskóla FHÍ að Rauðagerði 27 samkv. uppdrætti Landmótunar dags. 19. júní 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 9. ágúst 2018 til og með 6. september 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Jóhanna Guðmundsdóttir og Helgi Helgason dags. 4. september 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. september 2018 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.