Viðbygging
Síðumúli 24-26
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 761
7. febrúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. nóvember 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja við suðurhlið og koma þar fyrir búningsklefa fyrir starfsfólk og opna hjólageymslu undir þaki, sem verður lokuð með grindarhliði, við húsið á lóð nr. 24-26 við Síðumúla. Erindi var grenndarkynnt frá 6. janúar 2020 til og með 3. febrúar 2020. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun vegna viðbyggingar, A rými: 66,9 ferm., 198,7 rúmm. Hjólageymsla undir þaki, B rými: 34,6 ferm., 102,8 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103831 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001958