Breyting inni 1-3 hæð - varaaflstöð og kælibúnaður
Neshagi 16
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 531
13. mars, 2015
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. janúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 1. 2. og 3. hæð og koma fyrir rými fyrir kælibúnað og varaaflstöð við norðurhlið húss á lóð nr. 16 við Neshaga. Erindi var grenndarkynnt frá 29. janúar til og með 26. febrúar 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Húseigendur að Neshaga 14 dags. 22. febrúar 2015.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. janúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2015. Stærð varaaflstöðvarhúss mhl. 03 er 6,0 ferm. , 13,0 rúmm. og kælibúnaðarhúss 02 er 5,3 ferm., 11,7 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs

107 Reykjavík
Landnúmer: 106389 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022659