breyting á deiliskipulagi vegna lóðanna nr. 88A, 90 og 92A við Hverfisgötu
Reitur 1.174.0, Landsbankareitur
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 664
12. janúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn T.ark. Arkitekta ehf., mótt. 5. október 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.0, Landbankareits, vegna lóðanna nr. 88A, 90 og 92A við Hverfisgötu og 67A við Laugaveg. Í breytingunni felst m.a. að sameina lóðirnar að Hverfisgötu 88A og 90, gera kjallara undir Hverfisgötu 88A, fella niður kvöð um flutning hússins að Hverfisgötu 92 og þess í stað heimilt að fjarlægja húsið og byggja nýtt, rífa Laugaveg 67A og endurbyggja í sinni upprunalegu mynd o.fl., samkvæmt uppdr. T.ark. Arkitekta ehf., dags. 10. október 2017. Tillagan var auglýst frá 21. nóvember 2017 til og með 5. janúar 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar