breyting á skilmálum deiliskipulags Brynjureits
Klapparstígur 29
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 644
11. ágúst, 2017
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Yrki arkitekta ehf. , dags. 27. júní 2017, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Brynjureits vegna lóðar nr. 29 við Klapparstíg. Í breytingunni felst að heimilað er að hafa veitingastað í flokki II á jarðhæð Klapparstígs 29, samkvæmt tillögu Yrki arkitekta ehf. , dags. 27. júní 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 10. júlí 2017 til og með 7. ágúst 2017 Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Sigurður Örn Hilmarsson f.h. Klapparhorns ehf. og Réttar - Adalsteinsson &Partners ehf., dags. 4. ágúst 2017.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101437 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025792