breyting á deiliskipulagi
Skildinganes
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 655
27. október, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Davíðs Þorlákssonar, mótt. 19. júní 2017, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Skildinganess fyrir lóðina nr. 2 við Skildinganes. Í breytingunni felst að skilmálum er breytt þannig að heimilt er að hafa verönd á þaki bifreiðageymslu, samkvæmt uppdr. a2f arkitekta ehf., dags. 18. ágúst 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 11. september 2017 til og með 9. október 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Höskuldur H. Ólafsson og Sigríður Ólafsdóttir, dags. 6. október 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. október 2017 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs