breyting á deiliskipulagi
Skildinganes
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 647
1. september, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. ágúst 2017 var lögð fram umsókn Davíðs Þorlákssonar, mótt. 19. júní 2017, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Skildinganess fyrir lóðina nr. 2 við Skildinganes. Í breytingunni felst að skilmálum er breytt þannig að heimilt er að hafa verönd á þaki bifreiðageymslu, samkvæmt uppdr. a2f arkitekta ehf., dags. 18. ágúst 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Skildinganesi 1.3.4 ,6 og 8 og Bauganesi 4, 6 og 8.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr., ebr. 12. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.