(fsp) breyting á deiliskipulagi
Kirkjusandur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 636
16. júní, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. júní 2017 var lögð fram umsókn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, mótt. 7. júní 2017, um framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar á Kirkjusandsreit. Leggja á nýja götu, Hallgerðargötu ásamt tengigötum út frá henni skv. deiliskipulagi á Kirkjusandsreit. Framkvæmdin felst í jarðvegsskiptum, fyllingu, lagnavinnu og yfirborðsfrágangi á götu, bílastæðum, gangstéttum og götugögnum, samkvæmt uppdrætti verkfræðistofunnar Eflu, dags. 3. mars 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. júní 2016.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2016 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.