staðsetning ökutækjaleigu
Bíldshöfði 18
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 638
23. júní, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. júní 2017 var lögð fram umsókn Marvins Ívarssonar, mótt. 8. júní 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða vegna lóðarinnar nr. 18 við Bíldshöfða. Í breytingunni felst að hafa fjölbreytta blandaða atvinnustarfsemi í mannvirkjum á lóðinni í formi skrifstofuhúsnæðis, verslunar og þjónustu, matvælaframleiðslu, veitingahúsa, gististaða í flokki I-III, heildsölu, lagerhúsnæðis, létts iðnaðar og verkstæða fyrir létta iðnaðarstarfsemi., samkvæmt uppdr. Teiknir ehf., dags. 3. júní 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir GJALDSKRÁ vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.