staðsetning ökutækjaleigu
Bíldshöfði 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 765
13. mars, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Ragnars Sverrissonar dags. 18. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða vegna lóðarinnar nr. 10 við Bíldshöfða. Í breytingunni felst að koma fyrir viðbótarbyggingarreit sem er 2,3 x 7 metrar á suðurhlið hússins við vestur enda til að koma fyrir flóttastiga, samkvæmt uppdr. Teiknistofu A.V.J. dags. 25. janúar 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2020.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Bíldshöfða 8 og 12.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr., sbr. gr. 12 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110668 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008074