Gróðurhús
Úlfarsfell II
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 430
8. febrúar, 2013
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. október 2012 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tækjaskýli, 15,1 ferm. og 46,8 rúmm. að stærð og reisa tvo 10 metra tréstaura vegna fjarskiptaþjónustu á lóð nr. 173282 á toppi Úlfarsfells. Einnig er lögð fram umsögn Flugmálastjórnar Íslands dags. 17. október 2012, umsögn Isavia ohf. dags. 17. október 2012, umsögn Geislavarna ríkisins dags. 1. nóvember 2012, umsögn Póst- og fjarskiptastofnunar um aðstöðu dags. 13. október og um byggingarleyfi fyrir sendistað dags. 29. október 2012 og bókun skipulagsnefndar Mosfellsbæjar dags. 31. október 2012. Jafnframt er lagt fram minnisblaði lögfræði og stjórnsýslu dags. 15. nóvember 2012 og bréf Skipulagsstofnunar dags. 30. janúar 2013.
Gjald kr. 8.500 + 3.978
Svar

Kynna formanni umhverfis- og skipulagsráðs.

113 Reykjavík
Landnúmer: 191854 → skrá.is
Hnitnúmer: 10098010