Gróðurhús
Úlfarsfell II
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 710
4. janúar, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð er fram að nýju tillaga að deiliskipulagi fyrir svæði á toppi Úlfarsfells þar sem fyrirhugað er að reisa 50 metra hátt fjarskiptamastur fyrir loftnet og tækniskýli með útsýnispalli. Umrædd framkvæmd tryggir fullnægjandi útvarps- og fjarskiptaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og til að lágmarka sjónræn áhrif mannvirkja er lagt til að unnið verði með náttúruleg byggingarefni á þann hátt að mannvirkin falli sem best inn í landslagið og umhverfið. Stærð skipulagssvæðis er um 1,3 ha, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 7. september 2018. Einnig er lögð fram greinargerð verkfræðistofu Bjarna Viðarssonar dags. 18. september 2018 varðandi útreikninga á sviðsstyrk. Tillagan var auglýst frá 29. október 2018 til og með 17. desember 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemd: Íbúasamtök Úlfarsárdals dags. 7. nóvember 2018, Sigurjón Kr. Sigurjónsson dags. 7. desember 2018, Þórður Jónsson og Björg Kofoed-Hansen dags. 16. desember 2018, Gísli Álfgeirsson, dags. 16. desember 2018, Harpa Helgadóttir dags. 17. desember 2018, Rúrik Vatnarsson dags. 17. desember 2018, Ásta Guðbrandsdóttir dags. 17. desember 2018, Barbara Hafey Þórðardóttir dags. 17. desember 2018, Ásgeir Björnsson dags. 17. desember 2018, Linda Jónsdóttir dags. 17. desember 2018, Unnur Elva Gunnarsdóttir dags. 17. desember 2018, Sigrún Guðjohnsen dags. 17. desember 2018, Hildur Eyjólfsdóttir dags. 17. desember 2018, Kristín Björg Konráðsdóttir dags. 17. desember 2018, Rudolf Rúnarsson dags. 17. desember 2018, Rose Dahlke dags. 17. desember 2018, Þóra Magnúsdóttir dags. 17. desember 2018, Höskuldur Goði dags. 17. desember 2018, Guðrún Ósk Traustadóttir dags. 17. desember 2018, Þorkell Þorkelsson dags. 17. desember 2018, Alexander J. Baldursson dags. 17. desember 2018 og Helga Hreiðarsdóttir dags. 17. desember 2018. Að loknum athugasemdarfresti barst athugasemd frá: Ingimundi Stefánssyni dags. 18. desember 2018 og Arnari Jónassyni, dags. 18. desember 2018, Einnig er lögð fram umsögn Mosfellsbæjar dags. 26. nóvember 2018 og umsögn Umhverfisstofnunar dags. 7. desember 2018. Jafnframt er lögð fram fornleifaskráning Borgarsögusafns Reykjavíkur.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

113 Reykjavík
Landnúmer: 191854 → skrá.is
Hnitnúmer: 10098010