erindi ÍTR R14020065
Suður Mjódd, íþróttasvæði ÍR
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 506
28. ágúst, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. ágúst 2014 var lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar R14020065, dags. 20. ágúst 2014 ásamt erindi íþrótta- og tómstundasviðs frá 2. júní 2014 varðandi íþróttasvæði ÍR í Suður Mjódd. Einnig lagðir fram uppdrættir teiknistofunnar Storð, dags. 27. maí 2014. Erindið er sent umhverfis- og skipulagssviði til umsagnar. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2014.
Svar

Lagt fram.