breyting á deiliskipulag
Eggertsgata, stúdentagarðar
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 438
12. apríl, 2013
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 28. september 2012 var lagt fram erindi Arkís f.h. Félagsstofnunar stúdenta dags. 20. september 2012 um breytingu á deiliskipulagi stúdentagarða við Eggertsgötu, skv. uppdrætti dags. 20. september 2012. Sótt er um að afmarka byggingareiti fyrir byggingar við Eggertsgötu 2-34 og Suðurgötu 121 og einnig að heimilt verði að starfrækja leikskóla á 1. hæð Eggertsgötu 30-32. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Skerplugötu 1, 2 og 3, Reykjavíkurvegi 40-46 og 50 og Fossagötu 3.