breyting á deiliskipulag
Eggertsgata, stúdentagarðar
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 609
11. nóvember, 2016
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. nóvember 2016 var lögð fram fyrirspurn Félagsstofnunar Stúdenta, mótt. 6. október 2016, um að breyta fyrirkomulagi sorphirðu í Stúdentagörðum við Eggertsgötu 2-34 og Suðurgötu 121 og innleiða djúpgáma, samkvæmt uppdr. Arkþings, ódags. Einnig er lagt fram bréf Arkþings ehf., dags. 6. október 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2016.
Svar

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2016.