(fsp) svalir eða pallur úr timbri og aðgengi út í garð
Framnesvegur 20-26b
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 812
12. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. janúar 2021 var lögð fram fyrirspurn Báru Aðalsteinsdóttur dags. 20. janúar 2021 um að gera aðgengi út í garð lóðanna nr. 20-26B við Framnesveg sem felst í að setja svalir eða pall úr timbri á 1. hæð húsanna með tröppum út í garð. Einnig eru lagðar fram ljósmyndir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. mars 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. mars 2021 samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100261 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010661