breyting á deiliskipulagi
Austurhöfn TRH
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 516
14. nóvember, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 3. október var lögð fram fyrirspurn PK-Arkitekta ehf. dags. 5. september 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna reita 1 og 2. Í breytingunni felst að fella niður kvöð um inndregna jarðhæð við Tryggvagötu. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2014.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2014, samþykkt.