Breyta verslunarhúsnæði í veitingarstað
Hafnarstræti 1-3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 570
22. janúar, 2016
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. janúar 2016, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa á umsókn Sæta svínsins ehf., um rekstrarleyfi í flokki III fyrir veitingastaðinn Sæta svínið að Hafnarstræti 1-3. Sótt er um veitingatíma áfengis til kl. 01:00 virka daga og til kl. 04:00 aðfaranótt laugardags, sunnudags og almenns frídags. Einnig er sótt um útiveitingarleyfi áfengis til kl. 23:00. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. janúar 2016.
Svar

Jákvætt, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. janúar 2016.