breyting á deiliskipulagi
Leiðhamrar 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 332
6. janúar, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Sæmundar Sævarssonar dags. 2. nóvember 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna lóðarinnar nr. 1 við Leiðhamra. Í breytingunni felst stækkun á húsi samkvæmt uppdrætti Teiknistofu Björns Jóhannssonar dags. 20. október 2010. Einnig lagður fram lagfærður uppdráttur dags. 20. október 2010 breytt 17. nóvember 2010. Kynning stóð yfir frá 2. desember 2010 til og með 31. desember 2010. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

112 Reykjavík
Landnúmer: 108997 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018308