breyting á deiliskipulagi
Brúnavegur 13 - Hrafnista
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 696
31. ágúst, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
455056
455429 ›
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. ágúst 2018 var lögð fram umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 25. júlí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Laugarás Hrafnistu vegna lóðarinnar ne. 13 við Brúnaveg. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit fyrir loftræstiklefa fyrir framleiðslueldhús Hrafnistu, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 25. júlí 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.