breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030
Spítalastígur 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 626
17. mars, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Ásmundar Jóhannssonar, mótt. 27. október 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.184.1 vegna lóðarinnar nr. 8 við Spítalastíg. Í breytingunni felst að stækka 2. hæð hússins að gafli Spítalastígs 10 og hækka framhús um eina hæð þannig að framhús verði 3. hæðir, hækka bakbyggingu að gafli Bergstaðastrætis 17B um eina hæð þannig að bakbygging verði 2. hæðir og nota hluta þaks bakbyggingar sem flóttaleið og til útivistar., samkvæmt uppdr. Arko., dags. 25. nóvember 2016. Einnig er lagður fram tölvupóstur Kára Halldórs Þórssonar f.h. íbúa Bergstaðastrætisreits, dags. 3. febrúar 2017, þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti. Jafnframt er lögð fram umsögn Minjastofnunar, dags. 9. febrúar 2017. Tillagan var auglýst frá 2. janúar 2017 til og með 16. mars 2017. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Kári Halldór Þórsson f.h. íbúahóps Bergstaðastrætisreits, dags. 16. febrúar 2017 og Kári Halldór Þórsson , Júlíana Ingham, Guðný Stefanía Kristjánsdóttir og Rannveig Auður Jóhannsdóttir f.h. íbúa/hagsmunaaðila, dags. 16. mars 2017. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 9. febrúar 2017, þar sem dregin er til baka umsögn Minjastofnunar Íslands frá 10. ágúst 2016.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102011 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020123