Viðbygging
Sogavegur 22
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 653
13. október, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. október 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta viðbyggingu við vestur- og suðurhlið hússins á lóð nr. 22 við Sogaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. ágúst 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2017. Stækkun : 31.8 ferm., 103,4 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Sogavegi 16, 18, 20, 24, 30, 32,34, Akurgerði 5, 7 og 9.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 8.1 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107866 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018595