(fsp) loftgæðamælir
Laugarnes
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 677
20. apríl, 2018
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 13. apríl 2018 vegna samþykktar borgarráðs frá 12. apríl 2018 á svohljóðandi tillögu borgarstjóra dags. 10. apríl 2018: Lagt er til að borgarráð samþykki að stefna að gerð ylstrandar í Laugarnesi, við Skarfaklett. Gert verði ráð fyrir henni í nýju deiliskipulagi af svæðinu en starfshópur íþrótta- og tómstundasviðs, umhverfis- og skipulagssviðs og Veitna vinni áfram að þróun verkefnisins á grundvelli frumathugunar sömu aðila sem liggur fyrir. Fulltrúi Faxaflóahafna skal taka sæti í starfshópnum enda svæðið hafnarsvæði. Unnin verði fjárfestingar- og rekstraráætlun, ásamt tímaáætlun framkvæmda sem lagðar verði fyrir borgarráð til samþykktar fyrir 1. október nk. Gerðar verði nauðsynlegar kannanir og rannsóknir á jarðvegi og umhverfi, ásamt því að leggja mat á mögulega landfyllingu og landmótun á svæðinu. Landfyllingin yrði gerð með uppgreftri frá nálægum framkvæmdasvæðum, í því skyni að minnka akstursvegalengdir efnisflutninga. Miðað verði við að Orkuveita Reykjavíkur standi undir kostnaði við að leiða heitt umframvatn á ylströndina, ásamt nauðsynlegri uppfærslu á fráveitukerfum en Reykjavíkurborg og eftir atvikum Faxaflóahafnir, annan framkvæmdakostnað og framtíðarrekstur, skv. sérstöku samkomulagi.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.