(fsp) loftgæðamælir
Laugarnes
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 679
4. maí, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. apræil 2018 var lagt fram bréf borgarstjóra dags. 13. apríl 2018 vegna samþykktar borgarráðs frá 12. apríl 2018 á svohljóðandi tillögu borgarstjóra dags. 10. apríl 2018: Lagt er til að borgarráð samþykki að stefna að gerð ylstrandar í Laugarnesi, við Skarfaklett. Gert verði ráð fyrir henni í nýju deiliskipulagi af svæðinu en starfshópur íþrótta- og tómstundasviðs, umhverfis- og skipulagssviðs og Veitna vinni áfram að þróun verkefnisins á grundvelli frumathugunar sömu aðila sem liggur fyrir. Fulltrúi Faxaflóahafna skal taka sæti í starfshópnum enda svæðið hafnarsvæði. Unnin verði fjárfestingar- og rekstraráætlun, ásamt tímaáætlun framkvæmda sem lagðar verði fyrir borgarráð til samþykktar fyrir 1. október nk. Gerðar verði nauðsynlegar kannanir og rannsóknir á jarðvegi og umhverfi, ásamt því að leggja mat á mögulega landfyllingu og landmótun á svæðinu. Landfyllingin yrði gerð með uppgreftri frá nálægum framkvæmdasvæðum, í því skyni að minnka akstursvegalengdir efnisflutninga. Miðað verði við að Orkuveita Reykjavíkur standi undir kostnaði við að leiða heitt umframvatn á ylströndina, ásamt nauðsynlegri uppfærslu á fráveitukerfum en Reykjavíkurborg og eftir atvikum Faxaflóahafnir, annan framkvæmdakostnað og framtíðarrekstur, skv. sérstöku samkomulagi. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Lagt fram